Þessi síða í ham fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréGera hlutverk.is að upphafssíðu
Velkomin á vef Klúbbsins Geysis

 

 

Klúbburinn Geysir er sjálfseignarfélag með sérstakri stjórn. Klúbburinn er fyrir þá sem hafa átt við geðræn veikindi að stríða.

Markmið og tilgangur:

Að rjúfa félagslega einangrun klúbbfélaga og brúa bilið út í samfélagið á ný.

Klúbburinn byggir á hugmyndafræði Fountain house sem er upprunnin í Bandaríkjunum og rekur upphaf sitt til ársins 1947.  Klúbbhúsin sem starfa eftir hugmyndafræði Fountain house eru í alþjóðlegu samstarfi klúbbhúsahreyfingarinnar; International Center for Clubhouse Development (ICCD). Klúbburinn Geysir hefur vottun frá ICCD um að hann starfi samkvæmt viðmiðunarreglum klúbbhúsahreyfingarinnar.

Starfsemi klúbbsins skiptist í tvo meginþætti: Starf innan klúbbsins í skrifstofu-, eldhús-, og viðhaldsdeild, og aðstoð við félaga til að finna störf á almennum vinnumarkaði.

Í klúbbnum er rekin starfsleit, ráðning til reynslu (RTR) og er það atvinnuform sem klúbburinn leggur mest upp úr. RTR störf byggja á  eftirfarandi:

  • Starfsmaður klúbbsins lærir starfið og þjálfar viðkomandi félaga, vinnuveitanda að kostnaðarlausu.
  • Félaginn fær stuðning með því að halda áfram að mæta í klúbbinn á meðan á RTR stendur.
  • Komi sú staða upp að félagi geti ekki mætt í vinnu sér klúbburinn um að útvega starfskraft í hans stað, hvort sem það er annar félagi eða starfsmaður klúbbsins.
  • Vinnuveitendum er tryggt 100% vinnuframlag.
  • R.T.R. eru hlutastörf og tímatakmörkuð, að jafnaði 15 til 20 tímar á viku, í sex til til níu mánuði. Þá tekur annar við hans stöðu.

Það skiptir miklu máli að RTR störf séu fjölbreytt. Þannig geta félagar byggt sig upp hægt og örugglega með því að ráða sig í meira krefjandi störf og ná að lokum að verða aftur gildir á almennum vinnumarkaði.

Klúbburinn hefur nú yfir fimm RTR störfum að ráða, hjá:

Íslandsbanka, Félagsmálaráðuneytinu, Félagsmiðstöðinni  við Vitatorg, og Félagsþjónustunni Síðumúla og Hagkaupum Skeifunni.

Verndari klúbbsins er: Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands

 

 

Klúbburinn  Geysir  - Skipholti 29 - 105 Reykjavík - Sími 551 5166